Forsíða
   Hlið
   Fjölskyldan
   Gullnahliðið veitingar
   Alsæla spa hús
   Myndir
   Kort
   Tenglar
   Hafa samband
   Sjá lausa daga
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 


Bogi og Nok kynntust í Thailandi 1988 og giftu sig 1989 og Nok flutti í kjölfarið til Íslands ásamt sonum sínum Charin 10 ára og Nimit 8 ára.

Nimit, Charin, Bogi og Nok 1989
Kínarúlluvagnin Lækjatorgi

Bogi hafði rekið kínarúlluvagn á lækjartorgi í nokkur ár ásamt framleiðslueldhúsi í Kópavogi en fljótlega eftir að Nok kom til landsins tóku þau sér á leigu 35 fermetra húsnæði á horni Laugavegar og Smiðjustígs og opnuðu þar fyrsta austurlenska skyndibitastað landsins sem nefndur var ”Thailandi skyndibitastaður” staðurinn sprengdi utan af sér húsnæðið strax. Fyrr en varði voru þrjár hæðir í samliggjandi húsi undirlagðar vegna rekstrarins en á annarri hæð opnuðu þau vandaðan thailenskan veitingastað.

Thailandi á horni Laugavegar og Smiðjustígs
Inni á skyndibitastaðnum
Thailandi eftir stækkun
Veitingastaður 1 hæð

Veitingastaður 2 hæð

Á tímabili voru Bogi og Nok einnig með Thailand við Höfðabakka.

Thailandi við Höfðabakka

Á þessum árum var oft erfitt að nálgast kryddjurtir og annað hráefni til matargerðarinnar og þurfti oftar en ekki að biðja fjölskyldumeðlimi í Thailandi að senda vörur, það var úr að 1995 hófu Bogi og Nok innflutning á austurlenskum matvörum og opnuðu í kjölfarið “austurlenska vöruhúsið” í Hafnafirði.

Á þessum tíma bjó fjölskylda á Álftanesi í húsi sem Bogi smíðaði þar fæddist 1995 fimmti fjölskyldumeðlimurinn sonurinn Jón.

Austurlenska vöruhúsið í Hafnafirði
Húsið í Áltanesi sem Bogi smíðaði

Árið 1996 fór að halla undan fæti, bæði var framkvæmdagleðin full mikil og þar að leiðandi búið að spenna bogann full hátt, lægð kom í efnahagsmálum landsins og til að kóróna aðstæðurnar kom í ljós að maðkur var í mysunni í eignarétti seljenda að húsnæði sem var keypt undir reksturinn á Höfðabakka, það var of stór biti að kyngja. Þá var ekki um annað að ræða en að selja allt sem hægt var að selja svo hægt væri að standa undir þeim skuldbindingum sem gerðar voru við lánadrottna.

Þegar búið var að selja allt sem hægt var að selja hófst leit að húsnæði til að búa í fjárhagurinn var ekki burðugur salan á eignunum hafði ekki dugað fyrir öllum skuldunum og það var fyrirséð að það tæki nokkur ár að klára allar skuldirnar, Bogi byrjaði aftur að vinna við það fag sem hann lærði blikksmíði og Nok fékk vinnu hjá síld og fisk. Árið 1996 þau tóku á leigu íbúðahúsið að Hliði sem þá var eyðibýli og gerðu það íbúðarhæft.

1999 stofnaði Bogi Vog loftræstiþjónustu sem var fyrirtæki sem sérhæfði sig í hreinsun loftræstikerfa það fyrirtæki var sameinað ISS Íslandi 2003, sama ár byggðu Bogi og Nok sólstofu við íbúðahúsið að Hliði þar sem þau reka núna heimaveitingarhús.

Hlið þegar Bogi tók það á leigu 1996
Hlið heimaveitingarhús 2004

Þegar þetta er skrifað í apríl 2005 eru þau hjónin nýbúin að fá húsin að hliði keypt og fyrir höndum er uppbygging ferðaþjónustu þar á meðal baðhús (spa) og stækkun á veitingaaðstöðunni.

Svo nú brosir framtíðin við fjölskyldunni eina ferðina enn.

Heimaveitingar & spa - Hliði - 225 Áltarnesi - S: 565-2723 / 898-6440 - bogi@1960.is - www.1960.is