Forsíða
   Hlið
   Fjölskyldan
   Gullnahliðið veitingar
   Alsæla spa hús
   Myndir
   Kort
   Tenglar
   Hafa samband
   Sjá lausa daga
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Jurtagufubað
Það er margra alda hefð fyrir jurtagufuböðum í Taílandi enda áhrifarík aðferð til þess að auka lífsgæði. Jurtablanda eftir ævafornri uppskrift er soðin í potti, gufan leidd inn í herbergi og hitanum haldið við 42°C.  Blandan inniheldur 12 mismunandi jurtategundir m.a. engifer, sítrónulauf, börk af pomelo (sítrusávöxtur), tamarindlauf og comphor.

Jurtagufuböðin hafa bæði verið notuð til lækninga og til þess að bæta útlit.  Þegar Nok átti sín fyrstu börn í Taílandi '79 og '81 var hún drifin í 24 stunda jurtagufubað strax eftir fæðingu til þess að afeitra líkaman og hjálpa húðinni að komast í upprunalegt horf. Jurtagufan örvar m.a. blóðflæði, hjálpar líkamanum að losa úrgangsefni í gegnum húðina, kemur jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar og er grennandi. 

Jurtagufubað




Heitur sjópottur
Við erum með 8 manna pott uppi á þaki baðhússins. Þaðan er útsýnið stórbrotið yfir allt Reykjanes, Snæfellsnes og fjallahringinn í kring um höfuðborgarsvæðið. Á veturna má svo njóta norðurljósanna og stjörnubjarts himins þar sem við erum að mestu utan við ljósmengun borgarinnar. Sjópotturinn er fylltur af upphituðum, óblönduðum Norður-Atlantshafssjó. Hvorki klór né öðrum eiturefnum er blandað saman við sjóinn til þess að eyðileggja ekki náttúruleg gæði hans. Sjórinn hefur góð áhrif á húðina og dregur í sig neikvæða orku.

Heitur pottur




Sjóböð
Það er falleg sandvík fyrir framan baðhúsið og á háflæði kemur Atlantshafið
nánast alveg upp að bakdyrunum.  Á árum áður var skólasundið á Álftanesi í
víkinni á sumrin og það er hægur vandi að fara í sjóinn fyrir þau heljarmenni sem treysta sér í það.  Sjórinn fyrir framan húsið hefur verið rannsakaður og er mjög hreinn og laus við mengun.  Talið er að sjóböð styrki ónæmiskerfið og séu góð við kvefi.

Sjóbað




Thai nudd  (Traditional Thai Massage)
Thai nudd er ævaforn nuddaðferð sem byggist á því að opna flæði orkubrauta líkamans, m.a. með þrýstingi á orkupunkta og með jógateygjum enda er það oft kallað jóganudd sjá nánar.  Thai nudd er mjög öflugt nudd og getur verið sárt (vont-gott) ef líkaminn er í slæmu ásigkomulagi.  Thai nudd byggist upp á því að auðvelda flæði lífsorkunnar um líkamann en truflanir á orkustreymi líkamans leiða til sjúkdóma.  Thai nudd vinnur vel á vöðvabólgu og stífleika auk þess sem það eykur lífsorku og endurnærir líkama og sál.

Thai nudd





Jurtabakstranudd (Thai herbal compress massage)
Jurtabakstranudd er framkvæmt eftir hefðbundið Thai nudd.  Það er aðferð sem hefur þróast með Thai nuddinu um aldir.  Sérstakri blöndu af rótum, blöðum og blómum hinna ýmsu jurta er pakkað inn í léreftsdúk sem er hitaður yfir gufu og nuddað í vöðva og liði þannig að græðandi efni úr jurtunum gangi niður í gegnum húðina.  Jurtabakstranudd hefur m.a góð áhrif á stífa vöðva, bakverk og vöðvabólgu, er  bólgueyðandi og bætir blóðrásina.





Þarabað  (seaweed bath)
Þarann sem við notum veljum við úr fjörunni fyrir neðan baðhúsið.  Það er magnað
að sjá glæra, silkimjúka olíuna leka úr þaranum fljótlega eftir að hann er
settur í heitt vatnið.  Olían er mjög mýkjandi fyrir húðina og hafa þaraböð góð áhrif á hvers konar húðvandamál.  Böðin hafa í gegnum tíðina verið notuð m.a. til þess að lina vöðvabólgu og gigtarverki auk þess sem þau eru talin stresslosandi, grennandi og græðandi.  Heilandi áhrif þarans má rekja til hás hlutfalls steinefna og joðs sem finnast í þara og sjó. 












Verðskrá :


1.

Sjópottur og Jurtagufa

3.500 kr

2.

Þarabað

3.900 kr

3.

50 mínútna Thailenskt nudd

6.400 kr

4.

50 mínútna Thailenskt nudd og 15 mínútna jurtabakstranudd

9.300 kr

5.

100 mínútna Thailenskt nudd

11.900 kr

6.

Leiga á sundfötum

450 kr

7.

Leiga á handklæði

450 kr

8.

Leiga á slopp

990 kr

    Við minnum á geysivinsælu gjafakortin okkar.

Heimaveitingar & spa - Hliði - 225 Áltarnesi - S: 565-2723 / 898-6440 - bogi@1960.is - www.1960.is