Forsíða
   Hlið
   Fjölskyldan
   Gullnahliðið veitingar
   Alsæla spa hús
   Myndir
   Kort
   Tenglar
   Hafa samband
   Sjá lausa daga
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 


Veitingar

Gestir í betri stofunni

Bogi og Nok með frægasta matreiðslumeistara Thailands á milli sín og eiganda Bangkok airways lengst til hægri.

Við bjóðum upp á vandaðan thailenskan kvöldverð og þá sem einkasamkvæmi. (sjá nánar matseðil hér). Thailenska veislan er þríréttuð; kjúklingur í massaman, svínakjöt í engifer og pad thai núðlur með eggjum ásamt jasmin grjónum og salati. Á eftir er boðið upp á te, kaffi og rjómapönnukökur. Við erum nær undantekningalaust með sömu réttina, það er einungis ef grænmetis- og kryddjurtaúrval dagsins bregst hjá kaupmanninum sem við skiptum út réttum.

Gestir á góðri stund
Gestir við veitingaborðið

Við hjónin höfum verið meira og minna viðloðandi maragerð og veitingarekstur síðustu áratugina Nok aðstoðaði móður sína við súpusöluvagn hennar frá því hún var barn og fram á unglingsár einnig van hún við matreiðslu á virtu hóteli í Bagkok áður en hún flutti til Íslands 1989.

Bogi byrjaði með kínarúlluvagn á Lækjartorgi 1985 og fljótlega eftir að Nok flutti til landsins opnuðum við skyndibitastaðinn Thailandi og nokkrum árum seinna vandað veitingahús á efri hæð í sama húsi.

Við hjónin leggjum metnað okkar í það að gera eins vel og við getum í því sem við tökum okkur fyrir hendur, við uppskárum það meðal annars þegar virtasti kokkur thailands kom með fylgdarliði thailenskrar prinsessu til landsins. við vorum fengin til að elda fyrir þau, í kjölfarið kom hópurinn á veitingahús okkar.

Kokkurinn var svo hrifin af staðnum og matseldinni að hann fjallaði um staðin okkar í fjölmiðlum í Thailandi. Stuttu seinna komu blaðamenn frá Travel news asia og tóku viðtal við okkur. Greinin var birt í nóvember sama ár í sawade flugblaðinu hjá Thai airways, sem veitingastaður mánaðarins.

Grein úr Sawadee flugblaðinu hjá Thai airways bls. 1 og bls 2.

Heimaveitingar & spa - Hliði - 225 Áltarnesi - S: 565-2723 / 898-6440 - bogi@1960.is - www.1960.is